Hin franska Thylane Blondeau fékk titilinn fallegasta telpa heims þegar hún var aðeins sex ára. Nú er Blondeau orðin 16 ára og byrjuð að ganga tískupallinn fyrir merki á borð við Dolce and Gabbana.
Blondeau var aðeins fjögurra ára þegar hún gekk tískupallinn fyrir Jean Paul Gaultier. Sex ára sat hún fyrir á forsíðu Vogue Enfant. Þegar hún var aðeins tíu ára sat hún fyrir í myndaþætti í franska Vogue.
Myndaþátturinn í Vogue var harðlega gagnrýndur enda var hin tíu ára gamla Blondeau klædd í fullorðinlsleg föt og þótti myndirnar vera kynferðislegar.
Þrátt fyrir að vera Blondeau sé ekki eins hávaxin og flestar aðrar fyrirsætur sem ganga tískupalla þá virðist Blondeau ganga vel í tískubransanum og hefur hún vakið mikla athygli á tískuvikum í haust.