Stjörnurnar eru duglegar að klæða sig í stíl við börnin sín. Þó svo að þetta geti verið krúttlegt þegar börnin eru lítil getur það verið hálfógnvekjandi þegar börnin eru orðin eldri og farin að líkjast foreldrum sínum eins og í tilfelli Demi Moore og Rumer Willis.
Harper's Bazaar tók saman nokkur tilfelli þar sem stjörnurnar hafa klæðst eins fötum og börnin þeirra. Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er ansi dugleg að fara í smá fataleik með dóttur sinni North West. Vilhjálmur Bretaprins og Georg litli hafa stundum klæðst svipuðum fötum enda klæðast prinsar ekki hverju sem er.
Vilhjálmur Bretaprins og Georg Bretaprins
David Beckham og Brooklyn Beckham
Demi Moore og Rumer Willis
Gisele Bündchen og Vivian Brady
Beyoncé og Blue Ivy Carter
Kim Kardashian og North West