Leikkonan Lisa Rinna, 51 árs, hefur ekkert breyst á undanförnum tíu árum en hún notar meira að segja sömu fötin og hún gerði árið 2005.
Það er erfitt að gera greinarmun á þeim myndum sem teknar voru af Rinna árið 2005 annarsvegar og þeim sem voru teknar í byrjun þessa árs hinsvegar.
Rinna vakti athygli þegar hún mætti í Golden Globe fyrirpartý hinn 11. janúar því hún klæddist síðkjól sem margir könnuðust við. Þeim kjól klæddist hún fyrir nákvæmlega tíu árum síðan á fjáröflunarkvöldverði.
Ótrúlegt en satt þá hefur hún lítið sem ekkert breyst á þessum árum.