Förðunarfræðingurinn Hrush Achemyan hefur vakið töluverða athygli eftir að Jenner- og Kardashian-systurnar bættust í kúnnahópinn hennar nýverið. Hrush er frekar ýkt og hikar ekki við að fara alla leið þegar kemur að stórum augnhárum og ljómandi húð.
Hrush birtir reglulega myndir af kúnnum sínum sem hún hefur farðað á Instagram. Löng og þykk augnhár, mikill „highlighter“ og ljósar varir eru meðal þess sem einkennir förðunarstíl hennar. Glamúrinn er allsráðandi.
Hrush heldur reglulega námskeið fyrir áhugasama en slík námskeið kosta um 47.500 krónur. Nemendur fá kennslu hjá henni og gjafapoka. „Plús það að nemendur fá að taka myndir af sér með Hrush eftir námskeiðið,“ stendur á síðu námskeiðsins en Hrush er greinilega orðin hálfgerð stjarna eftir að hún tók að sér að farða stjörnur á borð við Jenner- og Kardashian-systurnar.