Katrín Middleton, hertogaynjan af Cambridge, hefur greinilega leyft augabrúnunum sínum að vaxa frjálslega undanfarið en í gegnum tíðina hefur hún af og til skartað ofplokkuðum augabrúnum.
Það var blaðamaður Mail Online sem benti á þá breytingu sem hefur átt sér stað á augabrúnum Katrínar á seinustu árum. Í dag virðast augabrúnirnar mun þykkri, dekkri og þéttari en þær voru árið 2004.
Ekki eru allir sammála um ágæti augabrúna Katrínar en sumum þykja þær of dökkar eða ójafnar. „Önnur þeirra er augljóslega þykkri en hin," sagði einn netverji. Öðrum virðist hreinlega vera alveg sama um augabrúnir hennar. „Ég hef merkilegri hluti að hugsa um heldur en hvað þessi kona gerir við augabrúnirnar á sér.“