Rapparinn Kanye West vakti mikla athygli á rauða dreglinum á Met Gala-ballinu. Hann klæddist rifnum gallabuxum og glitrandi jakka frá Balmain, svo var hann með ljósar litalinsur í augunum. En af hverju?
Mikil umræða hefur skapast á samfélagsmiðlum um linsurnar sem Kanye var með og fólk vill meðal annars vita af hverju hann valdi að vera með ljósar linsur.
Samkvæmt heimildum The Bustle voru linsurnar tilvísun í lagið hans Wolves. „Hann vildi að augu sín myndu líkjast augum úlfs meira,“ sagði augnlæknirinn Mitch Cassel. „Eitthvað sem myndi kalla á athygli, eitthvað öðruvísi. Hann vildi samt ekki að þetta yrði of gervilegt.“