Það er ýmislegt hægt að gera til að tryggja að brúðarförðunin endist allan daginn, góður undirbúningur er til dæmis mjög mikilvægur og eins er mikilvægt að vanda valið þegar kemur að snyrtivörum því þær þurfa að henta húð brúðarinnar. Guðný Hrefna Sverrisdóttir farðaði Evu Laufeyju Kjaran með vörum frá Sensai fyrir forsíðu Brúðkaupsblaðsins sem kom út í seinasta mánuði. Guðný hafði það að leiðarljósi að láta förðunina endast vel.
„Hreinsun skiptir höfuðmáli þegar kemur að því að gera húðina tilbúna fyrir farða bæði svo hann verði áferðarfallegri og sitji betur á yfir daginn. Gott er að hreinsa burt allar dauðar húðfrumur daginn áður og gefa húðinni djúpa næringu með rakamaska. Á brúðkaupsdaginn sjálfan er tekin létt hreinsun með andlitssápu og borið á rakakrem þar á eftir. Betra er að velja fituminna rakakrem svo farðinn haldist betur,” segir Guðný Hrefna.
Farðagrunnur og laust púður er galdurinn
Önnur af tveimur lykilvörum þegar kemur að endingargóðri förðun er grunnur að sögn Guðnýjar Hrefnu sem valdi Water Make-up Base-farðagrunninn frá Sensai. „Hann gefur þétta og ósýnilega hulu sem stinnir og mýkir húðina. Fluid Finish Lasting Velvet-farðinn er svo mattur og auðveldur í notkun, hann endist vel og þess vegna varð hann fyrir valinu. Hin lykilvaran er laust púður sem festir farðann og gefur silkimjúka áferð.“
„Sensai 38° maskarinn þolir bæði tár og svita, hann þykkir og lengir augnhárin. Þegar líður á daginn er mikið öryggi í því að hafa Face Fresh Paper við höndina sem er hrísgrjónapappír sem þerrar burt alla húðfitu. Hann má nota eftir þörfum án þess að það þurfi að bæta á farðann.“