Förðunarfræðingur Beyoncé leysir frá skjóðunni

Beyoncé er ein af glæsilegustu konum heims.
Beyoncé er ein af glæsilegustu konum heims. AFP

Beyoncé er ein af fegurstu konum heims, og eflaust urmull kvenna sem vill gjarnan líkjast henni. Nú hefur förðunarfræðingur söngkonunnar, Sir John, leyst frá skjóðunni og opinberað hvernig megi gera augnahárin sem glæsilegust.

Ráðin þrjú birtust á vef Allure.

Lengingarmaskari sem grunnur
Berðu svartan lengingarmaskara á efri augnhárin. Nuddaðu burstanum vel á milli háranna og dragðu hann svo í gegn.

Einbeittu þér að ytri augnhárunum fyrir seiðandi kisuaugu
Berðu maskara sem þykkir á ytri augnhárin. Á meðan maskarinn er enn blautur er gott að þrýsta hárunum örlítið upp með fingrunum til að krulla þau.

Brúnn maskari á neðri lokin
Sir John mælir með því að brúnn maskari, sem lengir augnhárin, sé að lokum borinn á neðri augnhárin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál