Söngkonan Britney Spears virðist vera ein af þeim stjörnum sem hefur látið eiga við andlit sitt á undanförnum misserum og netverjar eru óhræddir við að tjá sig um málið. Spears þykir augljóslega hafa látið fylla í varir sínar og mögulega mjókka nef sitt.
Á vefnum Latest Plastic Surgery, þar sem fegrunaraðgerðir frægra eru teknar fyrir, kemur fram að á þessu ári hafa áhrif þeirra fegrunaraðgerða sem Spears hefur farið í orðið verulega sýnileg. Hún hefur áður viðurkennt að hafa látið fylla í varir sínar en núna er breytingin ansi mikil. Einhverjir vilja svo meina að söngkonan hafi líka farið í fitusog og rassastækkun.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum hefur munnsvipur hennar breyst þó nokkuð.