Þegar sumarið gengur í garð þýðir lítið að vera með næpuhvíta húð og eins er ekki ráðlegt að grilla sig í sólinni því ekki viljum við skaða húðina. Þá koma brúnkukrem og -olíur að góðum notum. Úrvalið nú til dags af góðum brúnku- og ljómaaukandi vörum sem gæða húðina lífi og frískleika er ansi gott. Þetta er aðeins brot af því besta.
Önnur vara frá St. Tropez sem er að slá í gegn er Gradual Tan Tinted Body Lotion. Þessi vara er líkamskrem sem gefur húðinni örlítinn lit sem hægt er að byggja upp með reglulegri notkun. Kremið gefur ljóma og ilmar vel, sem verður að teljast sem stór plús í heimi brúnkukrems.
Tan Maximizer-kremið frá Lancaster er fyrir þær sem vilja halda sem fastast í náttúrulega brúnkuna. Kremið, sem er borið á húðina eftir að hafa verið í sól, tryggir að brúnkan endist mun lengur en hún hefði annars gert. Auk þess hefur kremið róandi áhrif á húðina og veitir henni raka. Má nota bæði á líkama og í andlit.
Shimmer Leg fix frá Nip+fab er rakakrem, sérstaklega hannað fyrir fætur og leggi. Kremið hefur gyllta áferð sem gefur sanseraða og dúnmjúka áferð. Kremið kemur sérstaklega vel út á sólbrúnum fótleggjum. Rúsínan í pylsuendanum er svo ilmurinn, en kremið ilmar af rósum og engifer.
Flash Bronzer-hlaupið frá Lancôme er fullkomið fyrir þær sem vilja hugsa vel um húðina og næla sér í smá lit á sama tíma. Hlaupið er fljótlegt í notkun en það þornar hratt og gefur ekki klístraða áferð. Liturinn kemur svo í ljós eftir nokkrar klukkustundir. Formúlan hefur að geyma meðal annars E-vítamín og önnur nærandi efni.
Dove Summer Revive er nærandi húðmjólk með náttúrulegum litarefnum sem gefa henni sólkysst útlit. Með þessari húðmjólk er hægt að byggja upp fallegan lit með reglulegri notkun og því er lítil hætta á að húðin verði of dökk eða flekkótt á stuttum tíma, með þessu móti er hægt að stýra litnum. Dove Summer Revive kemur í tveimur litum, fyrir ljósa eða dekkri húð.
Lumi drops frá danska merkinu Gosh eru sagðir vera leynivopnið fyrir unglegan og heilbrigðan ljóma. Droparnir innihalda agnir sem endurkasta ljósi fullkomlega og eru því flottir á svæðum sem við viljum draga fram. Lumi Drops má setja undir farða eða blanda saman við farðann til að fá auka ljóma. Einnig má blanda þeim saman við dagkrem eða líkamskrem til að gefa húðinni ferskleika. Lumi drops er ilmefnalaus vara.
Self tanning-úðinn frá Gosh er brúnkukrem í úðaformi. Það er auðvelt í notkun og gefur áferðarfallegan lit enda er auðvelt að úða kreminu jafnt yfir líkamann. Úðinn fæst í tveimur misdökkum litum. Þess má geta að varan er ilmefna- og parabenfrí.
Þær sem vilja svo taka hlutina skrefinu lengra geta baðað sig í sólarpúðrinu úr Bronze Goddess-línunni frá Estée Lauder. Þessu matta lúxuspúðri er fallegt að dusta yfir kinnbeinin, á ennið, á axlir og bringu svo dæmi séu tekin. Púðrið er olíulaust og stíflar ekki húðholur.
Til að auka á ljómann er tilvalið að nota Radiance in a Flash-kremið frá Guerlain. Kremið stinnir húðina og veitir henni unglegan ljóma samstundis. Mælt er með að bera kremið yfir hefðbundið rakakrem, á andlit og niður á háls. Kremið hefur sumarlegan ilm af sítrusávöxtum.