Dolce & Gabbana hefur nú sent frá sér nýjar útgáfur af Light Blue-ilmunum, sumarútgáfu ársins 2016. Ilmirnir eru tveir, annars vegar er það Love in Capri sem ætlaður er konum og hins vegar er það Beauty of Capri sem ætlaður er körlum. Love in Capri ilmar meðal annars eins og blómið geitatoppur og mandarína en Beauty of Capri ilmar sem sítrusávöxtur og hefur viðarundirtón.
Eins og nafnið gefur til kynna eru nýju Light Blue-ilmirnir innblásnir af eyjunni Capri og fagurbláa sjónum sem umlykur eyjuna.
Þessir sumarlegu ilmir, sem minna helst á sólríkan dag á ströndinni, fást í takmörkuðu upplagi.