Förðunarmyndband nokkurt hefur undanfarna daga vakið gríðarlega eftirtekt í netheimum. Það er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi að förðunarmyndbönd veki athygli, en þetta tiltekna myndband vekur athygli fyrir þær sakir að konan sem það tók hefur aðeins farðað hálft andlit sitt.
Munurinn á helmingunum tveimur er hreint ótrúlegur, og greinilegt að förðunarvörur geta ýmsu breytt.
Þegar þetta er skrifað hefur verið horft á myndbandið hátt í fjórum milljón sinnum, en myndskeiðið má sjá hér að neðan.