Hin breska Janey Farrell er kaupalki sem eyðir upphæð sem nemur um 5,4 milljónum króna í snyrtivörur og fegrunarmeðferðir á ári. Hún segir búðarráp vera sinn hæfileika.
Hin 30 ára Farrell hefur lifibrauð sitt af því að selja handtöskur, meirihluti launanna fer í að viðhalda útlitinu. Farrell kveðst gjarnan eyða á milli 400-500 þúsundum króna í förðunarvörur, brúnkukrem, hárlengingar, fegrunaraðgerðir og alskyns meðfeðrir á mánuði. „Ég elska peninga, ég elska að eyða þeim. Hæfileiki minn er að versla,“ segir hún. Þessu var greint frá á vef DailyStar.
Unnusti hennar hjálpar henni einnig á fjármagna „áhugamál“ sitt. „Ross [unnusti hennar] er besti vinur minn. Við verslum saman og hann elskar það.“
En Farrell versla svo mikið að hún hefur ekki undan að nota það sem hún kaupir. „Ég á nokkra kjóla sem kostuðu 300 pund inni í skáp, þeir eru ennþá með verðmiðanum á.“