Fyrsti sigur Þróttara kom gegn Eyjamönnum

Hjörtur Hjartarson framherji Þróttar. Aron Jóhannsson úr Fjölni er hér …
Hjörtur Hjartarson framherji Þróttar. Aron Jóhannsson úr Fjölni er hér til varnar. mbl.is/Ómar

Þróttur og nýliðar ÍBV áttust við í 7. umferð Pepsideildar karla í kvöld og á Valbjarnarvelli í Laugardal. Þróttur var í neðsta sæti deildarinnar með 2 stig en ÍBV var með 6 stig að loknum 6 leikjum. Þróttur sigraði 2:1 og lönduðu þar með sínum fyrsta sigri í deildinni. Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is.

Öll mörkin komu í síðari hálfleik. Hjörtur Hjartarson og Dennis Danry skoruðu með nokkura mínútna millibili um miðjan síðari hálfleik en varamaðurinn Þórarinn Valdimarsson minnkaði muninn í uppbótartíma.

Byrjunarlið Þróttar: Sindri Snær Jensson - Jón Ragnar Jónsson, Kristján Ómar Björnsson, Dennis Danry, Birkir Pálsson - Magnús Már Lúðvíksson, Hallur Hallsson, Kristinn Steinar Kristinsson, Morten Smidt, Davíð Þór Rúnarsson - Hjörtur Hjartarson.

Byrjunarlið ÍBV: Albert Sævarsson - Arnór Eyvar Ólafsson, Yngvi Borgþórsson, Eiður Sigurbjörnsson, Matt Garner - Bjarni Rúnar Einarsson, Christopher Clements, Andri Ólafsson, Tonny Mawejje - Gauti Þorvarðson, Ajay Leitch Smith.

Þróttur R. 2:1 ÍBV opna loka
90. mín. Ingvi Sveinsson (Þróttur R.) á skalla sem fer framhjá Fékk boltann óvænt þegar Albert kýldi frá markinu. Yngvi skallaði viðstöðulaust en framhjá opnu marki.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert