Eiður samdi við Eyjamenn

Eiður Aron Sigurbjörnsson og Trausti Hjaltason framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV eftir …
Eiður Aron Sigurbjörnsson og Trausti Hjaltason framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV eftir undirskriftina í dag. www.eyjafrettir.is

Eiður Aron Sigurbjörnsson, miðvörðurinn ungi í liði Eyjamanna, skrifaði í dag undir framlengingu á samningi sínum við knattspyrnudeild ÍBV til ársins 2013. Frá þessu var greint á  vef Eyjafrétta.

Eiður Aron er tvítugur og kom inní lið ÍBV á síðasta sumri þegar hann lék 19 leiki í úrvalsdeildinni og skoraði 2 mörk. Í sumar hefur hann spilað alla sex leiki ÍBV í deildinni og skorað eitt mark, í 3:2 sigrinum á Íslandsmeisturum FH.

Frétt Eyjafrétta í heild.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert