Draumamark frá Ondo í sigri Grindavíkur á FH

Scott Ramsay úr Grindavík og Hjörtur Logi Valgarðsson úr FH …
Scott Ramsay úr Grindavík og Hjörtur Logi Valgarðsson úr FH í návígi. mbl.is/Jakob Fannar

Grindavík vann 3:1 sigur á Íslandsmeisturum FH í 16. umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu í kvöld. Gilles Mbang Ondo fór langt með að tryggja sigurinn þegar hann skoraði annað mark Grindavíkur undir lok leiksins með stórglæsilegum hætti. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

FH komst yfir í fyrri hálfleik með marki frá Atla Viðari Björnssyni en Ondo jafnaði metin skömmu síðar. Óli Baldur Bjarnason gulltryggði sigurinn með marki á lokasekúndum leiksins.

Grindavík: (4-4-2) Óskar Pétursson - Alexander Magnússon, Auðun Helgason, Ólafur Örn Bjarnason, Jósef Kristinn Jósefsson - Scott Ramsay, Orri Freyr Hjaltalín, Jóhann Helgason, Hafþór Ægir Vilhjálmsson - Gilles Mbang Ondo, Grétar Hjartarson.
Varamenn: Óli Baldur Bjarnason, Ray Anthony Jónsson, Gjorgi Manevski, Matthías Örn Friðriksson, Benóný Þórhallsson, Guðmundur Andri Bjarnason, Emil Daði Símonarson.

FH: (4-3-3) Gunnleifur Gunnleifsson - Guðmundur Sævarsson, Tommy Nielsen, Freyr Bjarnason, Hjörtur Logi Valgarðsson - Pétur Viðarsson, Björn Daníel Sverrisson, Matthías Vilhjálmsson - Ólafur Páll Snorrason, Atli Viðar Björnsson, Atli Guðnason.
Varamenn: Gunnar Már Guðmundsson, Gunnar Kristjánsson, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, Torger Motland, Gunnar Sigurðsson, Helgi Valur Pálsson, Einar Karl Ingvarsson.

Grindavík 3:1 FH opna loka
90. mín. Gilles Mbang Ondo (Grindavík) skorar Taka tvö. Óli Baldur sendi frábæra stungusendingu á Ondo sem brunaði inn í vítateiginn þar sem hann mætti Tommy Nielsen, lék til hægri og þrumaði boltanum efst í hægra markhornið. Þvílíkt draumamark og á þvílíkum tímapunkti!
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert