Markakóngur þriggja félaga

Sævar Þór Gíslason og Sævar Freyr Alexandersson
Sævar Þór Gíslason og Sævar Freyr Alexandersson mbl.is/Eggert

Sævar Þór Gíslason, fyrirliði Selfyssinga, skoraði eitt markanna í 5:2 sigri þeirra á Grindvíkingum í lokaumferð Íslandsmótsins í knattspyrnu. Þar með varð hann markahæsti leikmaður Selfoss í deildinni í ár með 5 mörk og státar nú af því einstaka afreki að vera markakóngur þriggja félaga í efstu deild.

Sævar spilaði fyrst í efstu deild með ÍR árið 1998, eina ár Breiðholtsfélagsins þar, og varð markahæstur þar með 6 mörk. Hann lék síðan með Fylki frá 2000 til 2007 og er enn langmarkahæsti leikmaður Árbæjarliðsins í deildinni með 41 mark.

Ítarleg umfjöllun um Pepsí-deild karla er í 12 síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert