Tryggvi: Á ekki FH bara eftir að taka þetta?

Tryggvi Guðmundsson sóknarmaðurinn skæði hjá ÍBV var nokkuð sáttur við stigið sem Eyjamenn tryggðu sér á ögurstundu í leiknum gegn KR-ingum í Frostaskjólinu í kvöld. Tryggvi skoraði fyrra mark ÍBV-liðsins með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu.

„Flest lið hljóta að vera ánægð með að ná stigi á þessum erfiða útivelli gegn frábæru liði KR. Okkur langaði svakalega í stigin þrjú en úr því sem komið var þá var gott að fá stig. Toppbaráttan er nú galopin. Á ekki FH bara eftir að taka þetta? Nei ég segi svona. Það er mikið eftir og gott fyrir Pepsi-deildina að þessi leikur skyldi enda með jafntefli,“ sagði Tryggvi við mbl.is.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert