Fulham gengur frá kaupum á Berbatov

Berbatov hefur lítið fengið að spila með United undanfarin misseri.
Berbatov hefur lítið fengið að spila með United undanfarin misseri. Reuters

Búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov er genginn í raðir Fulham en Lundúnaliðið borgar Manchester United fimm milljónir punda fyrir leikmanninn.

Berbatov stóðst læknisskoðun hjá Fulham í dag og skrifaði í kjölfarið undir samning við félagið.

Berbatov kostaði Manchester United 30,75 milljónir punda árið 2008 en hann spilaði 149 leiki fyrir liðið og skoraði 56 mörk.

Hann var markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert