Sóknarmaðurinn Ellert Hreinsson gekk í raðir Breiðabliks í dag og skrifaði undir þriggja ára samning að því er fram kemur á vef stuðningsmanna félagsins, blikar.is.
Ellert, sem er 26 ára gamall, hefur leikið með Stjörnunni undanfarin ár og í sumar skoraði hann 5 mörk í 16 leikjum Garðabæjarliðsins í Pepsi-deildinni.
Ellert er annar leikmaðurinn sem Breiðablik fær til liðs við sig í haust en markvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson kom til liðsins frá Íslandsmeisturum FH á dögunum.