Fróði: Góð úrslit

„Þetta eru góð úrslit og við erum ánægðir.  Við vonuðumst eftir jafntefli eða sigri og að ná jafntefli er í lagi því nú eigum við ágæta möguleika fyrir heimaleikinn.  Það er alltaf erfitt að spila á útivelli en við erum ánægðir með jafnteflið,“ sagði Fróði Benjaminsen, fyrirliði HB frá Færeyjum, sem gerði 1:1 jafntefli gegn ÍBV í Eyjum í kvöld.

Þetta var fyrri leikur liðanna í fyrstu umferð forkeppninnar í Evrópudeild UEFA í knattspyrnu en sá síðari fer fram í Þórshöfn næsta fimmtudag.

Sjá nánar viðtalið í heild í myndskeiðinu hér að ofan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert