Kevin Durant, stigahæsti leikmaðurinn í NBA-deildinni, átti enn einn stórleikinn með Oklahoma þegar liðið bar sigurorð af SA Spurs, 111:105, í NBA-deildinni í körfuknattleik.
Durant skoraði 36 stig og Reggie Jackson skoraði 27 og komu 13 þeirra í síðasta leikhlutanum. Þetta var fimmti sigur Oklahoma í röð og er liðið með besta vinningshlutfallið í Vesturdeildinni. Tony Parker var atkvæðamestur í liði SA Spurs með 37 stig en liðið hefur tapað öllum þremur leikjum sínum fyrir Oklahoma á leiktíðinni.
Carmelo Anthony skoraði 28 stig fyrir New York Knicks sem tapaði á heimavelli fyrir Philadelphia, 110:106. Evan Turner skoraði 34 stig fyrir gestina og hefur aldrei skorað fleiri stig á ferli sínum í deildinni.
Úrslitin í nótt:
New York - Philadelphia 106:110
SA Spurs - Oklahoma 105:111
Charlotte - LA Clippers 95:91
Cleveland - Chicago 87:98
Orlando - Atlanta 109:112
Toronto - Dallas 85:93
Washington - Boston 111:113
Milwaukee - Detroit 104:101
Houston - Sacramento 119:98