Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði sannkallað draumamark fyrir KA í leiknum við Hauka í kvöld í 1. deildinni í knattspyrnu. Markið var hins vegar ekki dæmt gilt þar sem dómarar töldu boltann ekki hafa farið yfir marklínuna.
Myndband af markinu sýnir svo ekki verður um villst að boltinn fór af þverslánni og inn fyrir marklínu Hauka en það yfirsást dómurunum. Leiknum lauk með markalausu jafntefli. Myndbandið má sjá hér að neðan.