Öll liðin sem spila í Pepsi-deildinni á næsta tímabili nema bikarmeistarar KR hafa gengið frá þjálfaramálum sínum en Eyjamenn voru rétt í þessu að ganga frá ráðningu Jóhannesar Harðarsonar.
Eins og fram hefur komið er Rúnar Kristinsson líklegur til að yfirgefa KR og taka við Lilleström og er Bjarni Guðjónsson fyrrum þjálfari Fram sterklega orðaður við starfið.
Þjálfaralistinn lítur þannig út:
Stjarnan - Rúnar Sigmundsson
FH - Heimir Guðjónsson
KR - ?
Víkingur - Ólafur Þórðarson og Milos Milojevic
Valur - Ólafur Jóhannesson og Sigurbjörn Hreiðarsson
Fylkir - Ásmundur Arnarsson
Breiðablik - Arnar Grétarsson
Keflavík - Kristján Guðmundsson
Fjölnir - Ágúst Gylfason
ÍBV - Jóhannes Harðarson
ÍA - Gunnlaugur Jónsson
Leiknir - Freyr Alexandersson og Davíð Snorri Jónasson