Kristinn Jakobsson mun dæma leik Celtic og rúmenska liðsins FC Astra í Evrópudeildinni þegar liðin eigast við á Celtic Park í Glasgow á fimmtudaginn.
Sex íslenskir dómarar verða að störfum á leiknum. Aðstoðardómarar verða þeir Sigurður Óli Þórleifsson og Gylfi Már Sigurðsson. Auka aðstoðardómarar verða þeir Þóroddur Hjaltalín og Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og fjórði dómari Gunnar Sverrir Gunnarsson.
Celtic er í efsta sæti D-riðils með fjögur stig eftir tvo leiki en FC Astra er án stiga.