Ólína G. Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu til margra ára, gengur í dag til liðs við Fylki samkvæmt öruggum heimildum mbl.is.
Ólína hefur leikið með Val í hálft annað ár eftir að hún kom heim úr atvinnumennsku í Englandi og Svíþjóð, þar sem hún spilaði með Chelsea og Örebro. Þar á undan lék hún með KR, Breiðabliki og Grindavík.
Hún er með reyndustu landsliðskonum landsins og á að baki 70 A-landsleiki en tilkynnti í haust að hún hefði ákveðið að draga sig í hlé frá landsliðinu.