Ari: Spiluðu sig mörgum sinnum í gegn

„Þeir spiluðu sig í gegnum okkur mörgum sinnum,“ sagði vinstri bakvörðurinn Ari Freyr Skúlason við fjölmiðlamenn að tapleiknum loknum í Tékklandi í kvöld.

Ari sagði ennfremur að íslenska liðið ætti að geta gert betur í vörninni heldur en í leiknum í kvöld en mörkin sem Tékkarnir skoruðu voru fremur slysaleg. 

Tékkland sigraði 2:1 og er í efsta sæti riðilsins með fullt hús stiga eftir fjóra leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert