Eiður Aron Sigurbjörnsson, leikmaður Örebro, tók út gremju sína á markslánni eftir eitt þriggja marka liðsmanna Sundsvall í viðureign liðanna í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en Örebro tapaði, 3:1.
Eftir að Eiði og félögum í vörninni misheppnaðist að verjast einni af sóknum Sundsvall-liðsins, sem endaði með marki, endaði Eiður Aron sprett sinn á að stökkva upp og skalla markslána.
Atvikið hefur vakið mikla athygli en það má sjá á myndskeiði sem hér fylgir með.