Stjarnan og KR mætast í Meistarakeppni KSÍ í karlaflokki annað kvöld, í hinum árlega opnunarleik keppnistímabilsins í fótboltanum. Hann verður ekki leikinn á Samsung-vellinum í Garðabæ eins og til stóð.
KSÍ tilkynnti í dag að leikurinn hefði verið fluttur yfir í Kórinn í Kópavogi og það ætti að vera fagnaðarefni fyrir stuðningsmenn liðanna því veðurspáin fyrir mánudagskvöld er ekkert sérstök.
Leikurinn hefst klukkan 19.15 en þarna mætast Íslands- og bikarmeistarar síðasta árs og Stjarnan tekur nú þátt í þessum leik í fyrsta skipti.