Óskar Örn Hauksson leikmaður KR-inga er kominn með leikheimild með liðinu og gæti spilað með liðinu í kvöld gegn Stjörnunni í meistarakeppni KSÍ.
Óskar Örn sneri til aftur til KR-inga eftir suttta lánsdvöl hjá Edmonton í Kanada á laugardaginn var, en það stóð til að hann myndi leika með liðinu út þetta ár í NSL-deildinni, næstefstu deild Bandaríkjanna.
Óskar spilaði þó aðeins í 20 mínútur í fyrstu þremur leikjum Edmonton á tímabilinu og kom ekkert við sögu í tveimur þeirra og ákvað því að koma heim.