FH-ingar lögðu KR-inga að velli, 3:1, í fyrstu umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, Pepsi-deildarinnar, á KR-vellinum í kvöld þar sem Atli Guðnason tryggði sigurinn með tveimur mörkum undir lokin.
Fyrri hálfleikur einkenndist af mikilli baráttu þar sem ekkert var gefið eftir, en lítið var um marktækifæri í köldum vindinum og sólinni. Liðin áttu sína kafla þar sem þau náðu upp nokkurri pressu. Stefán Logi Magnússon í marki KR varði vel hörkuskot frá Steven Lennon snemma leiks en þar með voru góð færi upptalin.
FH-ingum var brugðið eftir hálftíma leik þegar Róbert Örn Óskarsson markvörður lá eftir í markteignum eftir hasar fyrir framan mark FH, og virtist illa meiddur, en eftir nokkra aðhlynningu hélt hann áfram. Fjögur gul spjöld fóru á loft í fyrri hálfleik og KR-ingar fengu þrjú þeirra.
Mörkin fjögur komu hinsvegar öll í seinni hálfleiknum og Jacob Schoop kom KR yfir á 50. mínútu með skalla eftir sendingu frá Sören Frederiksen, 1:0.
Kristján Flóki Finnbogason jafnaði fyrir FH á 73. mínútu með skoti af stuttu færi eftir hornspyrnu Jonathans Hendrickx frá vinstri, 1:1. Markið kom strax eftir tvöfalda skiptingu FH-inga og óhætt að segja að hún hafi virkað strax.
FH missti Hendrickx af velli, meiddan, skömmu síðar og útlit er fyrir að um alvarleg meiðsli sé að ræða.
Á 85. mínútu skoraði Atli Guðnason fyrir FH eftir sendingu frá Atla Viðari Björnssyni en þeir sluppu tveir gegn einum varnarmanni KR.
Róbert Örn Óskarsson varði í kjölfarið tvívegis vel frá Sören Frederiksen og kom í veg fyrir að KR jafnaði metin.
Í staðinn skoraði Atli Guðnason sitt annað mark í uppbótartímanum, með hörkuskoti frá vítateig uppúr hornspyrnu, og þar með var sigur FH-inga í höfn.