Léttir að sjá boltann í netinu

„Ég er feykilega ánægður með frammistöðuna í dag og hvernig strákarnir komu til baka eftir þennan skell sem við fáum í byrjun með því að fá ódýrt mark á okkur,“ sagði Jóhannes Harðarson, þjálfari ÍBV, í samtali við mbl.is eftir 2:2-jafntefli liðsins gegn Leikni í kvöld.

ÍBV skoraði sín fyrstu mörk í deildinni í leiknum, hafði ekki skorað í fyrstu þremur leikjunum. Þá er þetta jafnframt fyrsta stig liðsins í deildinni.

„Það er engin launung að það var mikil léttir að sjá boltann í netinu. Það vantaði bara mark númer þrjú,“ sagði Jóhannes, en nánar er rætt við hann í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert