Þráðurinn verður tekinn upp að nýju í Pepsi-deildinni í knattspyrnu í dag og kvöld en þrír leikir fara fram i 5. umferð deildarinnar í dag.
KR-ingar geta skotist í toppsætið en liðið tekur á móti botnliði ÍBV. KR er í þriðja sæti deildarinnar, er stigi á eftir Stjörnunni og tveimur stigum á eftir toppliði FH en Íslandsmeistarar Stjörnunnar taka á móti FH-ingum í stórleik umferðarinnar annað kvöld.
Leikir dagsins:
17.00 KR- ÍBV
19.15 Valur - Fjölnir
19.15 Keflavík - Fylkir