Dramatískur sigur Hauka á Fram

Úr leik Hauka og Fram í kvöld.
Úr leik Hauka og Fram í kvöld. Styrmir Kári

Fram, sem féll úr Pepsi-deild karla í knattspyrnu í fyrra, er enn án sigurs í 1. deildinni í ár en liðið mætti Haukum á útivelli í kvöld.

Ernir Bjarnason kom Frömurum yfir undir lok fyrri hálfleiks, en þegar tæpar tíu mínútur voru eftir jafnaði Björgvin Stefánsson metin fyrir Hauka. Það var því von á mikilli dramatík í lokin.

Það stóð heima. Á annarri mínútu uppbótartíma átti Darri Tryggvason fyrirgjöf sem virtist fara af leikmanni Fram og í netið. Lokatölur 2:1 fyrir Hauka í heldur betur dramatík.

Haukar eru nú með sex stig líkt og Fjarðabyggð, Þór og HK um miðja deild en Fram er enn að leita að sínum fyrsta sigri og er með eitt stig í tíunda sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert