Selfoss og Grindavík skildu jöfn þegar liðin mættust á Selfossi í kvöld í 1. deild karla í knattspyrnu.
Heimamenn byrjuðu heldur betur af krafti og strax á annarri mínútu komust þeir yfir þegar Ivanirson Silva skoraði með fallegu skoti. 1:0 í hálfleik.
Eftir hlé voru færi á báða bóga, en Grindavík fékk vítaspyrnu á 66. mínútu. Úr henni skoraði Tomislav Misura og jafnaði metin, 1:1. Einungis sex mínútum síðar fengu Grindvíkingar svo aðra vítaspyrnu, en í þetta sinn þrumaði Misura í þverslána.
Fleiri urðu mörkin ekki, lokatölur 1:1, en í blálokin fékk markaskorarinn Silva sitt annað gula spjald í liði heimamanna og þar með rautt.
Liðin sitja sem fastast í áttunda og níunda sæti deildarinnar, bæði með fjögur stig eftir fjóra leiki.
Fylgst var með gangi mála í beinni lýsingu hér á mbl.is.
90. Leik lokið.
90. Rautt spjald. Markaskorarinn Ivanirson Silva fær sitt annað gula spjald og þar með rautt í liði heimamanna í blálokin
72. Grindavík klúðrar víti! Einungis nokkrum mínútum eftir að hafa jafnað úr vítaspyrnu fengu Grindvíkingar aðra slíka. Á punktinn fór Tomislav Misura á ný, en í þetta sinn þrumar hann boltanum í þverslána!
66. Mark! Staðan er 1:1. Gestirnir úr Grindavík hafa jafnað. Það gerði Tomislav Misura úr vítaspyrnu, en hann skoraði af miklu öryggi.
46. Síðari hálfleikur er hafinn.
45. Hálfleikur. Eina markið til þessa kom strax á annarri mínútu.
2. Mark! Staðan er 1:0. Heimamenn eru ekki lengi að þessu og strax á annarri mínútu kemur Ivanirson Silva þeim yfir með fallegu skoti.
1. Leikurinn er hafinn.
0. Byrjunarliðin eru klár og þau má sjá hér að neðan.
Selfoss: Vignir Jóhannesson (M). Jordan Lee Edridge, Andrew James Pew, Einar Ottó Antonsson, Ivanisron Silva, Matthew Whatley, Sigurður Eyberg Guðlaugsson, Luka Jagacic, Marko Pavlov, Arnar Logi Sveinsson, Kristján Atli Marteinsson.
Grindavík: Benóný Þórhallsson (M). Hákon Ívar Ólafsson, Gylfi Örn Öfjörð, Rodrigo Gomes, Alex Freyr Hilmarsson, Ásgeir Þór Ingólfsson, Tomislav Misura, Magnús Björgvinsson, Jósef Kristinn Jósefsson, Björgn Berg Bryde, Alejandro Blzquez.