ÍBV er komið áfram í sextán liða úrslit bikarkeppni karla í knattspyrnu eftir auðveldan 6:0 sigur á liði Léttis sem leikur í 4. deild.
Dominic Khori Adams skoraði þrjú marka Eyjamanna í leiknum, en staðan var 2:0 í hálfleik. Jonathan Glenn skoraði eitt í fyrri hálfleik en undir lokin var það Richard Sæþór Sigurðsson, fæddur 1997, sem skoraði tvö mörk á tveimur mínútum. Lokatölur 6:0.
Fylgst er með gangi mála í öllum leikjum kvöldsins í ÍSLENSKA BOLTANUM Í BEINNI hér á mbl.is.