Þór/KA og Fylkir gerðu 1:1 jafntefli norðan heiða í fyrsta leik dagsins í Pepsi-deild kvenna. Sandra María Jessen kom Þór/KA yfir rétt fyrir hálfleik en Berglind Björg Þorvaldsdóttir jafnaði fyrir Fylki á 88. mínútu eftir hornspyrnu Söndru Sif Magnúsdóttur.
Norðankonur voru sterkari í fyrri hálfleik og pressuðu á gestina úr Árbæ. Þær uppskáru loks mark rétt fyrir leikhlé þegar að Sandra María skoraði sitt sjötta mark í deildinni í sumar eftir undirbúning frá Sarah Miller.
Fylkiskonur gáfust þó ekki upp og sýndu mikinn karakter með því að jafna metin en Sandra Sif tók hornspyrnu á 88. mínútu þar sem boltinn endaði að lokum á Söndru Sif sem skallaði knöttinn í netið, lokatölur 1:1.
Þór/KA hefur 11 stig í 2. sætinu en Fylkir fjögur í 7. sætinu.
Fylgst er með gangi mála ÍSLENSKA BOLTANUM Í BEINNI hér á mbl.is. Auk byrjunarliða, markaskorara og leiklýsinga má þar einnig finna ýmsa fróðleiksmola.