KA sló Breiðablik óvænt út

Atli Sigurjónsson, leikmaður með Blika með boltann í kvöld.
Atli Sigurjónsson, leikmaður með Blika með boltann í kvöld. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

KA sigraði Breiðablik, 1:0, eftir framlengdan leik í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla á Kópavogsvelli í kvöld og eru þar með komnir í 8-liða úrslit bikarkeppninnar en Breiðablik getur nú einbeitt sér að baráttunni framundan í Pepsi-deildinni.

Fyrri hálfleikur var tíðindalítill. Breiðablik fékk tvö ágæt færi, Ellert Hreinsson í bæði skiptin en honum tókst ekki að skora. Í fyrra skiptið skaut hann framhjá af markteig á 18. mínútu en á 24. mínútu varði Rajkovic ágætt skot Ellerts. KA lágu aftarlega, gáfu fá færi á sér og voru skipulagðir.

Í síðari hálfleik gerðist ekkert markvert lengi vel. Aðeins lifnaði yfir leiknum undir lokin en þá var eins og liðin áttuðu sig á að leikurinn yrði framlengdur eftir hann yrði markalaus. Atli Sigurjónsson átti skot í stöng fyrir Breiðablik á 74. mínútu og tveimur mínútum síðar skaut Ævar Ingi Jóhannesson rétt framhjá fyrir norðanpilta. KA fékk síðan frábært færi á 90. mínútu en Elfar Árni Aðalsteinsson skaut í stöngina og stuttu síðar flautaði Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dómari til leiksloka og því þurfti að framlengja.

Í framlengingunni komust KA-menn yfir á 98. mínútu. Halldór Hermann Jónsson komst þá upp hægri kantinn og sendi boltann fyrir þar sem Ævar Ingi Jóhannesson skallaði boltann í markið. Eftir markið pressuðu Blikar stíft en náðu ekki að gera það sem þarf, að skora. KA er því komið áfram í 8-liða úrslit bikarkeppninnar, eina liðið þar sem er ekki í Pepsi-deildinni.

Fylgst er með gangi mála í öllum leikjum dagsins í ÍSLENSKA BOLT­AN­UM Í BEINNI hér á mbl.is.

Breiðablik 0:1 KA opna loka
120. mín. Atli Sigurjónsson (Breiðablik) á skot sem er varið Þarna munaði litlu! Atli átti skot sem Rakjovic varði en missti boltann út í teig. Ellert átti annað skot en Rajkovic varði aftur!
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert