Framherjinn Hólmbert Aron Friðjónsson mun leika í Pepsideildinni seinni hluta leiktíðarinnar ef marka má frétt 433.is í dag.
Í fréttinni segir að Hólmbert hafi þegar fundað með nokkrum félögum en það eru Stjarnan, Valur, KR og Breiðablik. Hann muni svo taka ákvörðun á næstu dögum.
Hólmbert átti frábæra leiktíð með Fram árið 2013 áður en hann gekk til liðs við Celtic í Skotlandi. Á síðustu leiktíð var hann að láni hjá Bröndby í Danmörku. Hólmbert er enn samningsbundinn Celtic.