Eins og fram hefur komið á mbl.is tryggði ÍBV sér í dag sæti í undanúrslitum bikarsins eftir sigur á Fylki, 4:0, í Vestmannaeyjum.
Hægt er að segja að lokatölur leiksins hafi verið nokkuð óvæntar. ÍBV er í fallsæti í deildinni en Fylkir er fimm stigum ofar, og því bjuggust eflaust fáir við slíkum stórsigri. Allra síst stuðningsmenn Fylkis.
„Erum við einum færri?“ heyrðist í einum stuðningsmanninum í stúkunni, gáttaður á frammistöðu sinna manna. Fylkir er úr leik í bikarnum en ÍBV er komið í undanúrslit.
Sjá: Eyjamenn í undanúrslit eftir stórsigur