Glenn orðinn markahæstur

Jonathan Glenn fagnar marki með Blikum.
Jonathan Glenn fagnar marki með Blikum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jonathan Glenn úr Breiðabliki er orðinn markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar eftir þrennuna sem hann skoraði fyrir Blika í sigrinum gegn ÍA í kvöld.

Glenn hefur þar með skorað 9 mörk, 5 fyrir Breiðablik og 4 fyrir ÍBV. Daninn Patrick Pedersen úr Val kemur næstur með 8 mörk og þeir Þórir Guðjónsson, Fjölni, Albert Brynjar Ingason, Fylki, og Atli Viðar Björnsson úr FH hafa allir skorað 7 mörk en sá síðastnefndi hefur skorað 5 mörk í síðustu fjórum leikjum sinna manna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert