KA fór upp í 2. sæti 1. deildar karla í knattspyrnu með 3:0 sigri á HK á Akureyrarvelli í dag. KA og Þróttur eru nú bæði með 37 stig í öðru og þriðja sætinu en með þessum fimmta sigri sínum í röð er Akureyrarliðið komið uppfyrir Þróttara á markatölu. Víkingur frá Ólafsvík er með 44 stig á toppnum og getur tryggt sér úrvalsdeildarsæti á þriðjudaginn.
Elfar Árni Aðalsteinsson kom Akureyringum í forystu á 41. mínútu leiksins og voru hálfleikstölur 1:0. KA bætti síðan öðru markinu við á 60. mínútu en þá var Josip Serdarusic á skotskónum. Heimamenn voru með öll tök á leiknum, áttu 17 marktilraunir gegn 7 tilraunum HK-inga og bætti Elfar Árni öðru marki sínu við á 89. mínútu og voru lokatölur 3:0. HK er áfram í áttunda sæti deildarinnar með 22 stig.
Þróttur R. átti einnig þátt í klifri KA upp töfluna en liðið tapaði fyrir Fjarðabyggð á Eskjuvelli, 1:0, í síðasta leik dagsins. Þróttarar voru í öðru sæti fyrir umferðina með 37 stig, eins og KA núna. Hákon Þór Sófusson skoraði eina mark leiksins fyrir Fjarðabyggð á 53. mínútu.
Fjórir leikir voru á dagskrá 1. deildar karla í knattspyrnu í dag. Tveir þeirra hófust klukkan 14, einn klukkan 15 og sá síðasti hálftíma síðar. Fylgst var með þeim öllum í beinni textalýsingu hér á mbl.is.
Það er botnbaráttuslagur í Úlfarsárdal þegar Fram tekur á móti botnliði BÍ/Bolungarvíkur. Grótta, sem er í næstneðsta sætinu, fær Þór í heimsókn og Þróttur getur minnkað forskot Víkings Ó á toppnum með sigri á Fjarðabyggð. Þá fær KA lið HK í heimsókn.
Endurhlaða þarf síðuna svo lýsingin hér að neðan uppfærist.
Staðan:
14.00 Fram - BÍ/Bolungarvík 3:1 Leik lokið
14.00 Grótta – Þór 0:1 Leik lokið
15.00 KA – HK 3:0 Leik lokið
15.30 Fjarðabyggð - Þróttur R. 1:0 Leik lokið
17:18 Flautað er til leiksloka í Eskifirði. Góður sigur Fjarðabyggðar en Þróttarar hljóta að vera ósáttir.
16:48 Flautað er til leiksloka á Akureyri. KA vann öruggan 3:0 sigur á HK og klifrar upp í annað sætið.
16:44 Mark! KA - HK 3:0 Elfar Árni Aðalsteinsson skorar sitt annað mark og þriðja mark KA í dag. Frábær leikur hjá Akureyringum.
16:41 Mark! Fjarðabyggð - Þróttur R. 1:0 Hákon Þór Sófusson kemur heimamönnum í forystu á 53. mínútu!
16:15 Mark! KA - HK 2:0. Josip Serdarusic skorar annað mark KA í leiknum.
16:08 Síðari hálfleikur er hafinn hjá KA og HK, en hjá Fjarðabyggð og Þrótti er enn markalaust þegar fer að nálgast hálfleikinn.
15:53 Tveimur leikjum lokið. Fram og Þór vinna sína leiki en Djúpmenn eru fallnir. Þá er kominn hálfleikur hjá KA og HK, þar sem KA er yfir.
Umfjöllun um þá leiki sem eru búnir má sjá HÉR.
15:44 Mark! Fram - BÍ/Bolungarvík 3:1. Orri Gunnarsson skorar aftur og er að tryggja þetta fyrir Fram.
15:41 Mark! Fram - BÍ/Bolungarvík 2:1. Orri Gunnarsson var að koma Frömurum yfir á ný. Og þá er búið að flauta til leiks í síðasta leik dagsins, hjá Fjarðabyggð og Þrótti.
15:39 Norðanliðin eru að klúðra vítum hér í dag, því KA gerði það sama gegn HK eins og Þór gegn Gróttu. Elfar Árni Aðalsteinsson fór á punktinn en Beitir Ólafsson varði spyrnu hans. Það breytir því ekki að nú er komið Mark! KA - HK 1:0. Og það var Elfar Árni Aðalsteinsson sem bætti fyrir vítaklúðrið eins og Jóhann Helgi fyrir Þórsara!
15:28 Mark! Fram - BÍ/Bolungarvík 1:1. Botnliðið hefur jafnað metin gegn Fram, og það gerir Elmar Atli Garðarsson á 70. mínútu.
15:05 Mark! Grótta - Þór 0:1. Eftir að hafa klúðrað víti í fyrri hálfleik bætir Jóhann Helgi Hanesson upp fyrir það og kemur Þórsurum yfir á Nesinu.
15:02 Síðari hálfleikur er að hefjast í fyrstu tveimur leikjunum og þá er leikur hafinn hjá KA og HK.
14.50 Hálfleikur í leikjunum tveimur sem hófust klukkan 14, og eina markið var skorað þegar Fram komst yfir gegn Djúpmönnum.
14.15 Þórsarar klúðra víti á Nesinu á fimmtándu mínútu. Jóhann Helgi Hannesson fór á punktinn en brást bogalistin.
14.11 Mark! Fram - BÍ/Bolungarvík 1:0. Það tók Fram ekki langan tíma að komast yfir, en það gerði Sigurður Gísli Snorrason.
14.00 Tveir leikir hafnir. Flautað hefur verið til leiks hjá Fram - BÍ/Bolungarvík og Grótta - Þór.
13.50 Byrjunarliðin í leikjunum má sjá neðst í fréttinni. Liðin eru komin í leikjunum sem hefjast klukkan 14 og þegar þeir byrja bætast við liðin sem hefja leik klukkan 15. Markaskorarar eru fengnir frá urslit.net.
Grótta | Þór | ||||||
BYRJUNARLIÐ | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Árni Freyr Ásgeirsson (M) | 28 | Sandor Matus (M) | ||||
2 | Hilmar Þór Hilmarsson | 2 | Alfons Sampsted | ||||
3 | Benis Krasniqi | 6 | Ármann Pétur Ævarsson | ||||
4 | Guðmundur Marteinn Hannesson (F) | 7 | Orri Sigurjónsson | ||||
5 | Ósvald Jarl Traustason | 8 | Jónas Björgvin Sigurbergsson | ||||
8 | Atli Freyr Ottesen Pálsson | 9 | Jóhann Helgi Hannesson | ||||
11 | Jónmundur Grétarsson | 10 | Sveinn Elías Jónsson (F) | ||||
24 | Kristján Ómar Björnsson | 13 | Ingi Freyr Hilmarsson | ||||
25 | Björn Þorláksson | 19 | Sigurður Marinó Kristjánsson | ||||
26 | Viktor Smári Segatta | 20 | Guðmundur Óli Steingrímsson | ||||
29 | Markús Andri Sigurðsson | 30 | Þórður Steinar Hreiðarsson |
Fram | BÍ/Bolungarvík | ||||||
BYRJUNARLIÐ | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
12 | Cody Nobles Mizell (M) | 1 | Daði Freyr Arnarsson (M) | ||||
7 | Daði Guðmundsson | 3 | Alexander Jackson Möller | ||||
10 | Orri Gunnarsson (F) | 5 | Loic Cédric Mbang Ondo | ||||
11 | Hrannar Einarsson | 6 | Nigel Francis Quashie | ||||
14 | Indriði Áki Þorláksson | 7 | Sigurgeir Sveinn Gíslason (F) | ||||
15 | Ingiberg Ólafur Jónsson | 8 | Viktor Júlíusson | ||||
19 | Brynjar Benediktsson | 10 | Pape Mamadou Faye | ||||
20 | Magnús Már Lúðvíksson | 11 | Joseph Thomas Spivack | ||||
25 | Sigurður Gísli Snorrason | 14 | Aaron Walker | ||||
27 | Atli Fannar Jónsson | 21 | Rodchil Junior Prevalus | ||||
28 | Sebastien Uchechukwu Ibeagha | 22 | Elmar Atli Garðarsson |
KA | HK | ||||||
BYRJUNARLIÐ | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
23 | Srdjan Rajkovic (M) | 1 | Beitir Ólafsson (M)(F) | ||||
3 | Callum Williams | 7 | Aron Þórður Albertsson | ||||
4 | Hilmar Trausti Arnarsson | 8 | Atli Valsson | ||||
7 | Ævar Ingi Jóhannesson | 9 | Davíð Magnússon | ||||
8 | Halldór Hermann Jónsson | 11 | Axel Kári Vignisson | ||||
9 | Elfar Árni Aðalsteinsson | 16 | Guðmundur Þór Júlíusson | ||||
10 | Juraj Grizelj | 18 | Guðmundur Atli Steinþórsson | ||||
16 | Davíð Rúnar Bjarnason (F) | 19 | Viktor Unnar Illugason | ||||
22 | Hrannar Björn Steingrímsson | 21 | Andri Geir Alexandersson | ||||
25 | Archange Nkumu | 24 | Árni Arnarson | ||||
29 | Josip Serdarusic | 27 | Jökull I Elísabetarson |
Fjarðabyggð | Þróttur R. | ||||||
BYRJUNARLIÐ | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
20 | Kile Gerald Kennedy (M) | 30 | Trausti Sigurbjörnsson (M) | ||||
4 | Martin Sindri Rosenthal | 4 | Hreinn Ingi Örnólfsson | ||||
6 | Stefán Þór Eysteinsson (F) | 5 | Aron Ýmir Pétursson | ||||
7 | Elvar Ingi Vignisson | 6 | Vilhjálmur Pálmason | ||||
8 | Jóhann Ragnar Benediktsson | 7 | Oddur Björnsson | ||||
9 | Brynjar Jónasson | 9 | Viktor Jónsson | ||||
11 | Andri Þór Magnússon | 11 | Dion Jeremy Acoff | ||||
17 | Hákon Þór Sófusson | 19 | Karl Brynjar Björnsson (F) | ||||
19 | Milos Ivankovic | 20 | Jón Arnar Barðdal | ||||
21 | Hafþór Þrastarson | 23 | Aron Lloyd Green | ||||
23 | Bjarni Mark Antonsson | 26 | Grétar Atli Grétarsson |