Eins og fram hefur komið er áætlað að 3-4 þúsund Íslendingar verði í Amsterdam í kvöld þegar Ísland mætir Hollandi í undankeppni Evrópumóts karla í knattspyrnu kl. 18.45 að íslenskum tíma.
Á meðal stuðningsmanna Íslands á Amsterdam Arena verða þeir Björgvin Páll Gústavsson og Arnór Þór Gunnarsson, landsliðsmenn í handknattleik. Þeir leika með Bergischer í Þýskalandi en ákváðu að keyra til Hollands til að sjá leikinn í kvöld.
Þess má geta að Arnór er bróðir Arons Einars Gunnarssonar, fyrirliða knattspyrnulandsliðsins.
Ég og @BjoggiGustavs lagðir í hann til Amsterdam og ætlum að taka með okkur 3 stig til baka! @ronnimall pic.twitter.com/Y6F2W1nJM6
— Arnor Gunnarsson (@ArnorGunnarsson) September 3, 2015