Rétt í þessu var íslenska landsliðið að sigra það hollenska í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu sem fram fer á næsta ári. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eina mark leiksins en að mati margra var markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson maður kvöldsins. Sem oftar létu Íslendingar gamminn geisa á Twitter meðan á leiknum stóð.
Hvar er þesi Robben sem ætlaði að slátra Íslendingum? #Hollis
— Örn Úlfar Sævarsson (@ornulfar) September 3, 2015
Kolbeinn mundi endast mjög stutt sem hnefleikari. En þú veist, áfram Ísland.
— Krummi (@hrafnjonsson) September 3, 2015
Það eru eflaust margir til í þetta ferðalag.
Hey @Icelandair. Er miðnæturflug til Amsterdam i boði? Held við séum svona 16 þúsund sem væru til i að fara i partýið sem þar verður
— Benedikt Bóas (@benediktboas) September 3, 2015
Jááá..! Til hamingju strákar, Space Cake á línuna! #áframísland #HolÍsl
— Steindi jR (@SteindiJR) September 3, 2015
Hannes, Hannes, Hannes. Það er auðvelt að elska hann.
Ég vill fá styttu af Hannes Þór á austurvöll. #hollísl
— svennisig (@svennioddur) September 3, 2015
Ætla ađ láta barna mig á eftir bara til ađ geta skírt barnið #HANNES
— Margrét Gauja (@MargretGauja) September 3, 2015
Haltu á vindmyllu hvað þetta er sweet #fotbolti #fotboltinet
— Torfi R. Sigurdsson (@torfira) September 3, 2015
Ótrúleg staðreynd.
Fyrir rétt rúmu ári síðan varð þetta hollenska landslið í 3. sæti HM í Brasilíu. Síðan gerðist Ísland! #fotboltinet #Magnaðir
— S. Mikael Jónsson (@S_Mikael_J) September 3, 2015
Fjölmargir hollenskir stuðningsmenn stóðu á fætur og klöppuðu fyrir íslenska liðinu #gæsahúð #fotboltinet
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) September 3, 2015
OUI,OUI OG MERCI
Maður þarf þá að fara á frönsku námskeið í vetur! Ok tek því #roadtofrance #fotboltinet
— Hanna Símonar (@hannasimonar) September 3, 2015
Lars á Bessastaði?
Guð blessi þig Lars Lägerback #aframisland
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) September 3, 2015