Guðmundur Magnússon tryggði HK sigur á elleftu stundu, 1:0, gegn Fram í upphafsleik 20. umferðar 1. deildar karla í Kórnum í Kópavogi í kvöld. Hann skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu þegar komið var fram á þriðju mínútu í uppbótartíma. Þar er HK sloppið úr fallhættu í deildinni en Framarar eru enn innan hættusvæðis.
HK er komið með 25 stig og á tvo leiki í áttunda sæti. Fram er með 21 stig eftir jafnmarga leiki. Selfoss hefur 17 stig og Grótta 15 en bæði liðin eiga þrjá leiki eftir hvort. BÍ/Bolungarvík er fallið með 5 stig. Selfoss og Grótta mætast síðan í lykilleik fallbaráttunnar á morgun.
Byrjunarliðin voru þannig skipuð:
HK | Fram | ||||||
BYRJUNARLIÐ | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Beitir Ólafsson (M)(F) | 12 | Cody Nobles Mizell (M) | ||||
8 | Atli Valsson | 3 | Tryggvi Sveinn Bjarnason | ||||
9 | Davíð Magnússon | 5 | Ernir Bjarnason | ||||
11 | Axel Kári Vignisson | 7 | Daði Guðmundsson | ||||
13 | Jón Gunnar Eysteinsson | 9 | Davíð Einarsson | ||||
16 | Guðmundur Þór Júlíusson | 10 | Orri Gunnarsson (F) | ||||
18 | Guðmundur Atli Steinþórsson | 11 | Hrannar Einarsson | ||||
19 | Viktor Unnar Illugason | 19 | Brynjar Benediktsson | ||||
21 | Andri Geir Alexandersson | 20 | Magnús Már Lúðvíksson | ||||
24 | Árni Arnarson | 27 | Atli Fannar Jónsson | ||||
27 | Jökull I Elísabetarson | 28 | Sebastien Uchechukwu Ibeagha |