Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður Breiðabliks í Pepsi-deild karla, framlengir ekki samning sinn við félagið en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Guðjón á að baki 66 leiki með Blikum í bæði deild- og bikar en hann hefur þá gert 18 mörk í þeim leikjum.
Hann hefur verið liðinu afar mikilvægur en ljóst er að hann mun ekki framlengja samning sinn við félagið. Knattspyrnudeild Breiðabliks greinir frá þessu í tilkynningu í dag en þar kemur fram að ákvörðunin hafi verið tekin í fullri sátt beggja aðila.
Óvíst er hvar Guðjón mun spila á næsta tímabili en ljóst er að mörg lið vilja fá hann í sínar raðir.