Þorvaldur Örlygsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Keflavíkur í knattspyrnu sem féll úr Pepsí-deildinni. Samningar hans við Suðurnesjaliðið er til tveggja ára.
Á vef Keflavíkur kemur eftirfarandi fram;
„Þorvaldur hefur mikla reynslu sem þjálfari og er núverandi þjálfari U-19 landsliðs karla. Hann þjálfaði síðast lið HK en hafði áður þjálfað hjá KA, Fjarðabyggð, Fram og ÍA. Þorvaldur lék á sínum tíma með KA og Fram og var atvinnumaður um árabil. Hann á að baki 41 landsleik með A-liði Íslands og skoraði í þeim 7 mörk.
Knattspyrnudeild Keflavíkur er mjög ánægð með hafa fengið Þorvald til Keflavíkur og býður hann hjartanlega velkominn til starfa.“
Þetta er fyrsta nýrrar stjórnar knattspyrnudeildar Keflavíkur sem skipuð var á fimmtudagskvöldið en hana skipa: Jón G. Benediktsson, formaður, en aðrir í stjórn eru Gunnar Oddsson, Hermann Helgason, Karl Finnbogason og Þorleifur Björnsson.