Nýkrýndir Reykjavíkurmeistarar Leiknis í knattspyrnu byrjuðu Lengjubikar karla á því að sigra Þrótt úr Reykjavík, 1:0, í Egilshöllinni í gærkvöld.
Markið kom strax á 7. mínútu og var sjálfsmark Þróttara. Leiknir féll sem kunnugt er úr úrvalsdeildinni síðasta haust og Þróttarar fóru upp í staðinn.
FH vann Fjölni 4:0 í sama riðli fyrr um kvöldið. Í riðlinum eru einnig Þór og Leiknir frá Fáskrúðsfirði sem mætast í Boganum á Akureyri á morgun.