Þór Akureyri vann öruggan sigur þegar liðið mætti Leikni Fáskrúðsfirði í fyrsta leik liðanna í riðli 4 í A deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í Boganum á Akureyri í dag.
Jóhann Helgi Hannesson skoraði tvö marka Þórs, Bessi Víðisson skoraði sömuleiðis tvö mörk og eitt marka Þórs var sjálfsmark hjá leikmanni Leiknis.
Leiknir Fáskrúðsfirði verða nýliðar í 1. deild karla næsta sumar, en þar munu þeir mæta Þór sem leikur í sömu deild.