Íslandsmótið í knattspyrnu hefst í dag með fjórum leikjum í Pepsi-deild karla. Misjafnlega mikil saga er á bakvið þær viðureignir. ÍBV og ÍA mættust fyrst í efstu deild fyrir 47 árum en þrjú ár eru síðan Breiðablik og Víkingur Ólafsvík áttust við í fyrsta skipti á þessum slóðum.
Við skulum skoða leikina fjóra sem fara fram í dag og söguna sem er á bakvið hvern þeirra fyrir sig.
Þróttarvöllur, sunnudag kl. 16.
*Þetta er fyrsta viðureign félaganna í deildinni í sjö ár.
*Þau mættust fyrst í efstu deild 1976 og unnu sinn leikinn hvort á útivelli.
*FH hefur unnið 8 af 16 viðureignum félaganna í deildinni, Þróttur 4 en 4 hafa endað með jafntefli.
*Stærstu tölur í leik þeirra á milli í deildinni er 5:1 sigur FH í Laugardal 2005 þar sem Tryggvi Guðmundsson skoraði 2 mörk.
*Flest mörk komu hinsvegar í 4:4 jafntefli í Laugardal 2008 þar sem Hjörtur Hjartarson úr Þrótti og Arnar Gunnlaugsson úr FH voru á meðal markaskorara.
*Matthías Vilhjálmsson skoraði fjögur af sex mörkum FH gegn Þrótti í þremur síðustu viðureignum liðanna 2008 og 2009.
*FH hefur unnið sex af síðustu sjö leikjum félaganna í deildinni en þau gerðu 0:0 jafntefli í síðasta leik sínum 2009.
*Þróttur vann FH síðast 2003 þar sem Björgólfur Takefusa gerði þrennu í 4:1 sigri Reykjavíkurliðsins í Kaplakrika.
Hásteinsvöllur sunnudag kl. 17.
*ÍA vann báða leiki liðanna í fyrra, 2:1 í Eyjum í lokaumferðinni og 3:1 á Akranesi.
*Þau mættust fyrst í deildinni árið 1969 þegar ÍA vann báða leikina, 2:1 og 3:2.
*ÍA hefur unnið 35 af 68 viðureignum félaganna í deildinni, ÍBV 24, en 9 hafa endað með jafntefli.
*Stærstu tölur eru 7:1 sigur ÍA á Akranesvelli 1992 þar sem Arnar Gunnlaugsson skoraði þrennu og veðurfræðingurinn Theodór Hervarsson gerði eitt marka Skagamanna.
*ÍBV vann annan átta marka leik liðanna 5:3 á Hásteinsvelli árið 1971 þar sem Haraldur Júlíusson skoraði þrennu fyrir Eyjamenn og Andrés Ólafsson gerði tvö marka Skagamanna.
*Skagamenn hafa aðeins sigrað þrisvar í síðustu fjórtán heimsóknum sínum til Eyja. Þeir fögnuðu hins vegar eftir 2:2 jafntefli þar í lokaumferðinni 2001 þegar þeir tryggðu sér meistaratitilinn í hreinum úrslitaleik liðanna.
Kópavogsvöllur sunnudag kl. 19.15.
*Félögin mættust fyrst í deildinni 2013 og gerðu þá 0:0 jafntefli í Ólafsvík en Blikar unnu 2:0 í Kópavogi. Guðjón Pétur Lýðsson gerði bæði mörkin og Emir Dokara, leikmaður Víkings, fékk rauða spjaldið á 5. mínútu.
*Félögin mættust áður í næst efstu deild 1975. Þá léku þau vígsluleik Kópavogsvallar og Breiðablik vann yfirburðasigur, 11:0. Leikur liðanna í Ólafsvík endaði 2:0 fyrir Breiðabliki.
Valsvöllur sunnudag kl. 20
*Liðin gerðu jafntefli í báðum leikjum sínum í fyrra, 3:3 á Hlíðarenda og 1:1 í Grafarvogi. Aron Sigurðarson skoraði fyrir Fjölni í báðum leikjunum.
*Valur hefur unnið fjóra af átta leikjum félaganna á milli í efstu deild. Fjölnir hefur aðeins unnið einn en þrír endað með jafntefli.
*Þrettán mörk hafa verið gerð í tveimur síðustu leikjum þeirra á Hlíðarenda því Valur vann 4:3 þegar þau mættust þar 2014. Aron var þá líka á skotskónum fyrir Fjölni með tvö mörk.
*Pálmi Rafn Pálmason skoraði sigurmark Vals, 2:1, í fyrstu viðureign félaganna í efstu deild árið 2008.